Eitt og annað af netinu:
Inga Sæland: „Mér finnst það mannvond ríkisstjórn sem berst ekki af öllu afli gegn einangrun, óöryggi og fátækt þeirra sem mest þurfa á hjálp hennar að halda. Hvernig má það vera að hægt sé að fótumtroða þarfir þeirra sem erjað hafa og sáð fyrir okkur sem á eftir komum? Mér er fyrirmunað að skilja slíka framkomu við þá sem hafa greitt í ríkiskassann svo áratugum skiptir og skapað þá velmegun sem við ættum öll að fá að njóta í dag, þótt raunin sé önnur.“
Hrafn Arnarson: „Sýn bankastjórans er takmörkuð. Sjóðfélagar eiga sjóðina. Þeir eða fulltrúar þeirra hafa fullan rétt á því að tjá sig um málefni þeirra. Taka á fulltrúa atvinnurekendur út úr stjörnum lífeyrissjóða. Þeir lita á lífeyrissjóðina sem sína eigin fjárfestingarsjóði. Það er augljóslega ekki í samræmi við hagsmuni þeirra sem eiga lífeyrisréttindi. Stjórnendur Icelandair beittu ólöglegum þvingunaraðgerðum kjarabaráttu, það leiddi til harðra viðbragða verkalýðshreyfingar. Bollaleggingar um skuggastjórnendur eru sérkennilegar í ljósi þessara atburða.“