Fréttir

Maðurinn sem átti að drepa

By Miðjan

September 07, 2024

„Ekk­ert for­seta­efni eða for­seti hef­ur setið und­ir öðrum eins ákær­um og ásök­un­um og Don­ald Trump hef­ur þolað í aðdrag­anda kosn­ing­anna sem nú fara fram.“

Stjórnmál Örugglega er leit að manni, utan Bandaríkjanna, sem styður Donald Trump ámóta og Davíð Oddsson gerir. Enn eitt Reykjavíkurbréf Moggans er skrifað honum til stuðnings. Hér eru tvö sýnishorn:

„Ekk­ert for­seta­efni eða for­seti hef­ur setið und­ir öðrum eins ákær­um og ásök­un­um og Don­ald Trump hef­ur þolað í aðdrag­anda kosn­ing­anna sem nú fara fram. Þeir, sem helst héldu um spott­ana á brúðuheim­ili Hvíta húss­ins, lögðu svo sann­ar­lega sitt af mörk­um. Engu var lík­ara en þeir tryðu því, að ef dóms­málaráðuneytið, svo vel mannað sem það er, ákvæði eitt­hvað, þá væru því all­ir veg­ir fær­ir og hreint aukaaðriði hvort aðgerð væri lög­leg eða ekki.“

Svona er það. Svo er hitt sýnishornið:

„En þótt Trump væri skikkaður til að sitja und­ir bjálfa­rétt­ar­höld­um dag­inn inn og út, þá fór hann í lok þess­ara ónýtu daga á opna fundi síðdeg­is, sem urðu sí­fellt fjöl­menn­ari. Og þess­ar ósvífnu ásak­an­ir, og óstöðvandi ferðalög hans út um all­ar koppa­grund­ir, urðu til þess að skoðanakann­an­ir sýndu öran vöxt á fylgi við myndaða mann­inn, sem átti að drepa.“

Svona er nú það.