Magnús nokkur upplifði það sem margir telja líklega nærri ómögulegt. Hann skrapp í bíó í gær og á meðan hann naut myndarinnar hækkaði bensínlíterinn hjá Atlantsolíu við Sprengisand um heilar 10 krónur.
Magnús segir frá þessu í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Svona lýsir hann atvikum:
„Einmitt, það var reyndar tankbíll að fylla á með dýrara bensín. Fórum í bíó kl 16.30, bensínið hjá Atlantsolíu Sprengisandi var 303 kr. Komum úr bíó 19.20 þá var verðið komið í 313.“
Fjölmargir meðlimir furða sig á þessi miklu og snöggu hækkun á bensíninu hjá Atlantsolíu. Flestir eru hundsvekktir og Karlotta er ein þeirra. „Þeir leika sér bara þeir ríku,“ segir hún.
Sigurbjörg fylgist líka vel með. „Mætti í vinnu kl 7:30 þá var bensínið á 331.20 það var komið í 345.20 eftir hádegi. 14 kr. hækkun. Bara bilun!, segir Sigurbjörg.
Unnar heldur að hann viti ástæðuna fyrir þessu. „Það þarf að taka inn á móti „sumarafslættinum“, segir hann. Og Bjarni er líka viss um hvaða lærdóm má draga af þessu. „Moral of story.. ekki fara í bíó!“
Þórður nokkur segir verðþróunina á bensíni hér á landi vera ískyggilega og birtir þessa mynd máli sínu til stuðnings: