Hópur lögreglumanna og ákærenda hefur verið þjálfaður í rannsókn hatursglæpa. Og eins var þjálfun í að sækja þá til saka sem grunaðir eru um slík brot.
Þjálfunin snerist líka um að miðla þeirri þekkingu til annarra sem sinna löggæslu og fara með ákæruvald.
Leiðbeinendur á námskeiðunum voru frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ODIHR) í samræmi við samkomulag sem ODIHR gerði við íslensk stjórnvöld og skrifað var undir í desember síðastliðnum. Stefnt er að því að þessi fræðsla verði fastur liður í menntun og símenntun lögreglumanna og ákærenda.
Alþjóðlegar stofnanir hafa skilgreint hatursglæpi sem brot á almennum hegningarlögum þar sem ásetningur brotsins ræðst að öllu leyti eða hluta til af fordómum gerandans gagnvart brotaþolanum vegna þjóðernis, trúarbragða, kynþáttar, litarháttar, kynhneigðar eða kynvitundar. Þátttakendur á námskeiðunum lýstu ánægju með hvernig til tókst en á þeim var m.a. fjallað um skilgreiningu á hatursglæpum og áskoranir sem mæta rannsakendum og ákærendum í þessum málum. Þá unnu þátttakendur hagnýt verkefni og æfðu sig í að koma þekkingu sinni á framfæri.
Námsefni um hatursglæpi fyrir lögreglumenn og ákærendur hefur verið þýtt á íslensku og vinnur samráðshópur að þessu verkefni. Í honum eiga sæti fulltrúar dómsmálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins, ríkissaksóknara, mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar og Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins.