Fundargerð staðfesti að þetta var spjall um ekki neitt og hlaut því að taka tíma.
„Skrítnustu upplýsingar síðustu vikna um orkupakkamálið voru þær, að spjall íslenskra yfirvalda við einn af kommissörum ESB hefði einungis verið innantómt hjal, að vísu uppáskrifað.Í því spjalli varð enginn vendipunktur, eins og gefið var til kynna,“ þannig skrifar Davíð í Staksteina dagsins. Ljóst er að gjáin í Sjálfstæðisflokknum dýpkar enn. Mest vegna orkupakkans.
„Fundargerð staðfesti að þetta var spjall um ekki neitt og hlaut því að taka tíma. Ekki minnst á fyrirvara sem ráðherrar sögðu þjóðinni að breyttu málinu. Nú er látið í veðri vaka að fyrirvararnir verði síðar dregnir upp úr hatti og breyti þá málinu,“ skrifar ritstjórinn.
Og umbúðalaust um stöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
„Þessir skrítnu vitnisburðir um vonda samvisku hafa síðar verið kallaðir „lofsverðar blekkingar“. Það hafi verið lofsvert framtak að blekkja þingflokk Sjálfstæðisflokksins með endaleysu og hetjudáð og bíræfni að fá hann til að gleypa svo ólystugt agn.
Kenningasmiðurinn sá réð þó ekki við að kalla það lofsvert af öflugasta þingflokki landsins að láta fara svona með sig. Þingflokkurinn stendur óneitanlega laskaður eftir. Deilan snýst þó eingöngu um það hvort málið sé stórhættulegt fyrir Ísland eða bara vita gagnslaust fyrir Ísland!
Síðast í gær gerði Brynjar Níelsson grein fyrir viðsnúningi sínum gagnvart orkupakkanum. Þar skýrir hann hvað henti:
„Nokkuð stór hópur „grasrótarinnar“ er heitt í hamsi vegna innleiðingar 3ja orkupakkans. Ég hef gert grein fyrir afstöðu minni og mér gengur ekkert annað til en að gæta hagsmuna okkar, annars vegar þeirra sem felast í EES samstarfinu og hins vegar að tryggja um leið yfirráð okkar yfir orkuauðlindinni, hvernig eignarhaldi okkar er háttað og hvort við tökum þátt í innri markaði með sölu á orku til Evrópu í gegnum sæstreng. Því er mér óskiljanlegt hvernig hagsmunum okkar er betur borgið með því að hafna 3ja orkupakkanum.
Mér þykir afskaplega vænt um „grasrótina“ og er í miklum samskiptum við hana og hlusta. Ég er hins vegar ekki þannig maður að afstaða mín fari eftir því hvernig vindar blása hverju sinni, hvorki hjá „grasrót“ flokksins eða annars staðar. Þið hafið kosið rangan mann á þing ef þið haldið það, kæru vinir.“
Þannig skrifaði Brynjar í gær. Þeir tveir, Davíð og Brynjar hafa þar með dregið upp skýra mynd af ósættinu sem er innan flokksins.