Lilja Rafney Magnúsdóttir enn einn þingmaður Vinstri grænna sem er hafnað. Bjarni Jónsson hafði betur í forvalinu í Norðvesturkjördæmi. Þetta þýðir eflaust að hún missir þingsætið. Áður var það Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Kolbeinn Proppé og Ólafur Þór Gunnarsson sem þurftu að þola höfnun eigin flokkssystkina..
Niðurstaða forvalsins í Norðvestri er eftirfarandi:
- 1. sæti Bjarni Jónsson með 543 atkvæði í 1. sæti
- 2. sæti Lilja Rafney Magnúsdóttir með 565 atkvæði í 1.-2. sætið
- 3. sæti Sigríður Gísladóttir með 444 atkvæði í 1.-3. sæti
- 4. sæti Þóra Margrét Lúthersdóttir með 622 atkvæði í 1.-4. sæti
- 5. sæti Lárus Ástmar Hannesson með 679 atkvæði í 1.-5. sæti
- 8 voru í framboði
- Á kjörskrá voru 1454
- Atkvæði greiddu 1049
- Kosningaþátttaka var 72%
- Auðir seðlar 3