Mikill manndómur væri í því að Lilja Alfreðsdóttir hætti píningum á Hafdísi Helgu Ólafsdóttir. Ofbeldið sem Lilja beitir er hið minnsta ógeðfellt. Lilja reynir af afar veikum mætti að rökstyðja framgöngu sína.
Í Mogga dagsins segir Lilja:
„Ákvörðunin er tekin þannig að upphaflega þegar úrskurðurinn kom þá leitaði ég til sérfræðinga á sviðinu til að láta meta hann. Fram kom þá að það hefði ekki verið sýnt með fullnægjandi hætti að kæranda hefði verið mismunað á grundvelli kynferðis í fyrsta lagi og í öðru lagi að það væri ekki hlutverk kærunefndar að endurmeta sjálfstætt hvern hefði átt að skipa í embættið.“
Rökin eru ekki einu sinni fokheld. Héraðsdómur og kærunefnd jafnréttismála hafa sagt sitt. Lilja, og jafnréttisráðherrann Katrín Jakobsdóttir, velur að berja enn á umsækjandanum Hafdísi Helgu. Allt til að verja þekkta spillingu við skipan í helstu stöður stjórnsýslunnar.
-sme