Nýlega fékk fráfarandi bankastjóri Arion banka 150 milljónir í starfslokagreiðslu.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skrifaði rétt í þessu:
Fyrir þá sem halda því fram að samtryggingarkerfi lífeyrissjóðanna sé fyrir láglaunafólkið og sé öryggisnet þeirra tekjulægstu.
Nýlega fékk fráfarandi bankastjóri Arion banka 150 milljónir í starfslokagreiðslu. Það jafngildir 312.500 kr. launum, á mánuði, í 40 ár.
Því má ætla að eftirlaunaréttindi bankastjórans fráfarandi hafi jafnframt aukist, með einni greiðslu, sem nemur vinnuframlagi láglaunafólks, í fullu starfi, í 40 ár eða heila starfsævi.
Þetta var greiðsla fyrir að hætta störfum vegna þess að afkoma bankans, undir hans stjórn, var undir væntingum. Mánaðarlaun hans voru árið 2018 rúmar 5,6 milljónir á meðan lágmarks tekjutrygging láglaunafólks, fyrir fullt starf, var rétt að merja 300 þúsund kallinn.
Ef við setjum þetta í samhengi við þau réttindi sem ávinnast innan lífeyrissjóðakerfisins, sem eru 74 til 76% af meðaltekjum, er hægt að álykta sem svo að orðið samtrygging á ekki við þegar kemur að lífeyrissjóðum, nema þá helst sem öfugmæli. Öfugt við skattkerfið sem þó reynir að tryggja öllum jafnan aðgang að grunnþjónustu óháð tekjum eða stöðu.“