Lenya birtir ljót skilaboð: „Hvers vegna klæðirðu þig alltaf eins og drusla?“
Varaþingmaður Pírata, Lenya Rún Taha Karim, deildi á Twitter-síðu sinni viðbjóðslegum og að sjálfsögðu nafnlausum skilaboðum sem henni bárust þar.
Lenya hefur áður fengið ógeðfelld skilaboð full af kvenhatri og rasisma.
Einn hugleysingjanna setur út á klæðburð Lenyu:
„Hvers vegna klæðirðu þig alltaf eins og drusla? Þú ert varaþingmaður, hagaðu þér þannig.“
Lenya hefur vakið athygli fyrir flotta framgöngu og er opin og óhrædd manneskja sem lætur ekki hatur, fáfræði og fordóma stoppa sig. Einnig hefur Lenya vakið athygli fyrir glæsilegan klæðnað og er óhrædd við að vera bara eins og hún vill vera – eins og fólk á að vera.
En því miður er Lenýa orðin vön slíkum skilaboðum frá hugleysingjum sem hata bæði kvenfólk og útlendinga; og sem betur fer kann Lenya að svara fyrir sig.
Gerði það svona:
„Gleymist að ég sé bara 22 ára, má ég aðeins. Ef ég klæði mig á íhaldssaman hátt er ég mússakerling sem vill innleiða shairalög, ef ég klæði mig SUMARlega er ég drusla.“