Lengri langir biðlistar á Landspítala?
Haraldur Benediktsson, Sjálfstæðisflokki og varaformaður fjárlaganefndar, er ekki á því að þurfi að setja meiri peninga til Landspítalans vegna heimsfaraldursins. Hann vill að Landspítalinn „hagræði“. Haraldur hefur helst vakið athygli fyrir að vera félagi í fýlupúkafélagi síns flokks.
Fram hefur komið að hlutverk fjárlaganefndar er svipur hjá sjón sem miðað við það sem áður var. Starfsfólk fjármálaráðuneytis og ráðherrann þar á bæ semja fjárlögin, að mestu. Því er óvíst hvaða umboð Haraldur hefur til að tjá sig eins og hann gerir.
Það er Mogginn sem segir frá fyrirhuguðum þrengingum á Landspítala. Þar segir:
„Ljóst er að bókhald Landspítala það sem af er ári hefur litast mjög af heimsfaraldri kórónuveiru. Farið hefur verið í kostnaðarsamar framkvæmdir auk þess sem víðtækar skimanir og greiningar hafa verið framkvæmdar. Þá má gera ráð fyrir að áhrif faraldursins séu ekki öll komin fram.“
Þá er komið að Haraldi: „Við þekkjum ekki afleiðingar faraldursins. Það verður til dæmis aukinn kostnaður vegna sjúkraþjálfunar og af annarri framhaldsmeðferð. Síðan hefur þurft að ráðast í miklar fjárfestingar og fara í greiningar og sýnatökur, þannig að viðbótarkostnaðurinn verður einhver.“
Og hvað segist Haraldur vilja gera:
„Spítalinn er með gríðarlega möguleika til forgangsröðunar fjármuna og ráðuneytið hefur verið að reyna að herða að útgjaldavexti síðustu ára. Svo þarf einnig að fara í önnur mikilvæg verkefni eins og til dæmis rekstur hjúkrunarheimila.“
Er ekki verið að segja okkur að Haraldi hefur verið tjáð úr fjármálaráðuneytinu að herða eigið að Landspítalanum. Lengja löngu biðlistana? Mogginn spurði ekki.
Afritaðu og límdu þessa vefslóð í WordPress vefinn þinn til þess að fella inn
Afritaðu og límdu þennan kóða yfir í vefinn þinn til þess að fella inn