„Leitun að meiri aumingjasamkomu en Alþingi Íslendinga“
Þór Saari skrifar:
Ósætti innan ríksstjórnarflokkana og frámunalega barnalegar hugmyndir alþingismanna um hugtakið frelsi hafa nú gert það að verkum að Alþingið okkar getur ekki sett almennileg sóttvarnarlög til verndar almenningi í landinu, og það í miðjum heimsfaraldri.
Ég lýg því ekki að ég sannarlega held að það sé leitun að meiri aumingjasamkomu en Alþingi Íslendinga í öllum hinum vestræna heimi. Ég var þarna í fjögur ár og upplifunin var slík að ég varð að skrifa heila bók um vinnubrögðin. Þau hafa greinilega ekkert breyst.
Að sjálfsögðu á þetta þing að segja af sér og það á að boða til kosninga strax þar sem þau ráða augljóslega ekki við verkið. Vanhæf ríkisstjórn og algjörlega vanhæft Alþingi er einfalega ekki hægt að líða. Burt með ykkur!