Á sunnudag, 10. maí, lýkur sýningunni Leikum og lærum: Ásmundur fyrir fjölskyldur – fræðandi þátttökusýningu í Ásmundarsafni.
Á sýningunni er meðal annars hægt að búa til rok, raða upp orðum í höfðaletri og byggja eigið Ásmundarhús.
Ásmundarsafn og Ásmundargarður hefur í gegnum tíðina verið ævintýraheimur margra kynslóða og hús Ásmundar einstakt og þekkt kennileiti í Laugardalnum.