Leiguþak stendur næst loftárás
Hildur Sverrisdóttir Sjálfstæðisflokki skrifar grein í Moggann þar sem hún varar við hugmuyndum um leiguþak.
„Það er ekki mannvonska eða skeytingarleysi að gjalda varhug við slíkum inngripslausnum, heldur hefur reynslan af þeim einfaldlega verið slæm. Leiga undir markaðsverði hefur aukið á grunnvandann með sóun á húsnæði, verra viðhaldi og stöðvun nýbygginga. Leiguþak hefur búið til óeðlilega eftirspurn og dregið úr nauðsynlegu framboði. Verktakar hafa ekki byggt og eigendur ekki leigt húsnæði sem þeir fá ekki raunvirði fyrir til að nefna nokkrar algengar afleiðingar slíkra inngripa. Hagfræðingurinn Henry Hazlitt orðar það beinskeytt að hámarksleiga sé ekki einungis árangurslaus heldur valdi hún æ meiri skaða fyrir alla, og ekki síst fyrir hópinn sem átti upphaflega að hjálpa. Annar hagfræðingur, Assar Lindbeck, orðaði það enn snaggaralegar; að leiguþak sé skilvirkasta leiðin til að eyðileggja borgir, fyrir utan sprengjuárás,“ segir meðal annars í grein Hildar.