Þeir peningar sem hafa farið til reskturs sjúkrabíls á Ólafsfirði verða eftirleiðis nýttir til að greiða laun hjúkrunarfræðings við sjúkrahúsið á Siglufirði. Þar er um nýráðningu að ræða.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG og Ólafsfirðingur, gerði þetta að umræðuefni á Alþingi í dag. Hún sagði þetta gert vegna samdráttar. „Þetta er í raun birtingarmynd þess að fjárveitingar eru af of skornum skammti eftir sameiningu stofnananna eins og forstöðumaður hefur ítrekað við fjárlaganefnd og birtist m.a. í lokafjárlögum sem við fjöllum um hér á eftir.“
Sjúkrabíllinn í Ólafsfirði hefur verið starfræktur sjúkrabíll þar í ríflega 30 ár, en safnað var fyrir honum á sínum tíma af hálfu Rauða kross deildarinnar þar.
Bjarkey benti á að mikil ásókn ferðamanna er um Tröllaskaga. „Tröllaskaginn er stórt og erfitt svæði, og eru sjúkrabílar svæðisins að fara samanlagt í u.þ.b. 400 sjúkraflutninga yfir árið. Sjúkrabíllinn í Ólafsfirði er staðsettur miðsvæðis á Tröllaskaganum og því alltaf með stystan viðbragðstíma. ef kalla þarf út auka sjúkrabíl. Í fyrra voru 107 sjúkraflutningar frá Ólafsfirði, 181 frá Siglufirði og 125 úr Dalvíkurbyggð. Það kemur oft fyrir að báðir bílarnir í Fjallabyggð eru á ferð á sama tíma og við vitum að það er jú oft viðbragðstíminn sem skiptir máli. Hver mínúta getur skipt máli og hefur það svo sannarlega sýnt sig oftar en einu sinni.“