Launahækkun ráðherra og þingmanna: „Er fólki ekki sjálfrátt?“
„Hvað þýðir þetta: Að hækkunum til valdastéttarinnar hafi verið frestað vegna lífskjarasamningsins? Þýðir það að hækkunum hafi verið frestað til að búa ekki til uppnám í samningaviðræðum á milli hins opinbera (ríki, borg, SÍS) og samtaka launafólks? Er hér bara blákalt verið að viðurkenna að til að grafa ekki undan ofsafenginni bókstafstrúnni á að hækkanir lífskjarasamningsins væru þær einu í boði hafi kerfið ákveðið að hylma yfir með sjálfu sér og blekkja? Bíða aðeins með að afhenda hálaunafólki miklu miklu meira en það sem samið var um í svokölluðum lífskjarasamning? Sem hefur verið notaður sem barefli til að gera lítið úr og gjaldfella réttlætisbáráttu láglaunakvenna í hefðbundnum kvennastörfum og kjarabaráttu annara kvennastétta?“
Þetta skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og annar varaforseti ASÍ:
„Þið verið að fyrirgefa að ég spyr: Er fólki ekki sjálfrátt?“
„Elva Björk Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, segir í samtali við mbl.is að hækkunin sem tók gildi núna hefði átt að koma til framkvæmda í júlí í fyrra í samræmi við lögin en henni hafi verið frestað til áramóta í tengslum við lífskjarasamningana.“