- Advertisement -

Látið reka á reiðanum

Nú eru ekki lengur lofsöngvar um Donald Trump í Reykjavíkurbréfi Moggans. Þessa helgina eru þar ýmis samfélagsmál. Við leyfum okkur að birta síðasta kafla Reykjavíkurbréfsins sem fjallar um ríkisstjórnina og þó einkum Kristúnu Frostadóttur forsætisráðherra:

Látið reka á reiðanum

Hún hefur tekið þá afstöðu í mörgum helstu málum, sérstaklega brýnum efnahagsmálum, að láta reka á reiðanum í stað þess að taka erfiðar ákvarðanir. Aðhald í rekstri ríkisins er í besta falli orðin tóm og ríkisútgjöldin þenjast út þvert á slíkt tal. Afleiðingin er sú – og núllið stóra breytir engu þar um – að forsætisráðherra hefur hvorki tekist að berja niður verðbólgu né vexti, sem hún þó lofaði að gera með leikrænum tilþrifum sem þóttu góð á meðan ekki hafði reynt á efndirnar.

Með Flokk fólksins í því ástandi sem hann er má ljóst vera að úr þeirri átt kemur ekkert nema þá helst frekari kröfur um aukin útgjöld. Hinir flokkarnir tveir, sem ættu að geta sýnt ábyrgð og ættu að hafa nauðsynlega þekkingu á efnahagslífinu innanborðs til að skilja hvað þarf til, hafa því miður ekki sýnt betri tilþrif í þessum efnum. Þeir leggja meira á sig við að réttlæta óréttlætanlegar útgjaldakröfur Flokks fólksins en að stíga niður fæti og huga að stærri mynd efnahagsmálanna og heilbrigði þjóðarbúsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef til vill er það stytting vinnuvikunnar sem hefur orðið til þess að ráðherrar gefa sér ekki tíma til að sinna því sem brýnast er í efnahagsmálum. Það skyldi þó ekki vera. Einhver hlýtur skýringin að vera þó að hún hafi ekki fundist enn. Ekki er það getuleysið eitt, það má ekki vera, því að þá væru okkur allar bjargir bannaðar á þessu kjörtímabili


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: