Landspítalanum er gert að borga 434 milljónir í fasteignaskatta á ári. Reykjavík ber höfuð og herðar yfir önnur sveitarfélag hvað varðar ávinning af fasteignasköttum sem ríkið borgar. Alls fær borgin meira en 2.100 milljónir í fasteignaskatta. Kópavogur, næst stærsta sveitarfélagið, fær innan við 90 milljónir í fasteignaskatta vegna fasteigna ríkisins.
Háskóli Íslands borgar 300 milljónir í fasteignaskatta og Alþingi borgar 40 milljónir í fasteignaskatta.