- Advertisement -

Lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til viðskiptavina – fór í digra bankasjóði

Alþingi:

Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu:

„Ég hef velt því fyrir mér hvort þingmaðurinn hafi lesið skýrsluna sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, lét gera um hvernig lækkun á bankaskatti hefði skilað sér þegar skatturinn var lækkaður árið 2020.

Ég er nú bara búin að skima þessa skýrslu en þegar ríkisstjórnin þáverandi lækkaði bankaskattinn var auðvitað búið að segja að lækkunin myndi skila sér til viðskiptavina og þessi skýrsla var unnin af nefnd þar sem m.a. áttu sæti fulltrúar frá SFF og fleirum, mikilsvirt fólk.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Niðurstaða þessarar nefndar sem birtist í skýrslunni var sú að ávinningurinn af lækkun bankaskattsins skilaði sér ekki til viðskiptavina. Það auðvitað vekur athygli. Nú erum við að ræða það og þetta er eitt af því sem við munum ræða í háttvirtri efnahags- og viðskiptanefnd og ég heyri það að mörgum þingmönnum þykir það eðlilegt að bankarnir velti þessu yfir á viðskiptavini. Mér finnst það alls ekki eðlilegt.

Mér finnst að við lifum í samfélagi og mér sem jafnaðarmanni finnst bara eðlilegt að við hugsum þetta þannig að við berum ábyrgð hvert á öðru. Viðskiptavinir íslensku bankanna eru íslensk heimili og íslensk fyrirtæki og mér finnst ekkert óeðlilegt að fjármálafyrirtæki landsins komi með stjórnvöldum og haldi í sér þessari þörf fyrir að velta þessu yfir á viðskiptavini. Mig langar að velta þessum hugleiðingum til háttgvirts þingmanns.“

Þingmaðurinn sá er Bryndís Haraldsdóttir.

„Ég nefndi þetta varðandi bankaskattinn og ég nefndi sérstaklega að hæstvirtur fjármála- og efnahagsráðherra brást þannig við þegar hann fékk fyrirspurn frá fréttamönnum um þetta, hvort búast mætti við því að hækkun bankaskatts myndi leiða af sér hækkun gjalda hjá bönkum. Ég held að ég hafi tekið alveg rétt eftir, að hæstvirtur ráðherra viðurkenndi að það mætti alltaf búast við því. Hér eru orðin fræg ummæli formanns Viðreisnar sem hélt hér ræðu um bankaskatt og fjallaði nákvæmlega um að það mætti búast við því að hann færi út í verðlagið. Ég held að það sé bara hagfræðilega sannað að það má búast við því að svo sé.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: