„Þessa stundina er lögmaður Verkalýðsfélags Akraness að leggja lokahönd á stefnu á Kristján Loftsson forstjóra Hvals hf. fyrir að meina öllum starfsmönnum að vera í Verkalýðsfélags Akraness á þeirri vertíð sem nú er nýhafin. Málinu verður stefnt fyrir félagsdóm og mun það gerast annað hvort í dag eða strax eftir helgi.
Það er morgunljóst að Verkalýðsfélag Akraness lætur ekki vaða yfir sína félagsmenn á skítugum skónum og verður öllum slíkum aðgerðum mætt af fullri hörku!“
Þetta skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, rétt í þessu.