Meðal þess sem Kristján Þór Júlíusson hefur ákveðið er að leyfa útgerðum að geyma kvóta milli ára. Það sagt gert til að auka sveigjanleika. Þetta er gert í skjóli vanda vegna kórónuveirunnar.
Í frétt frá Kristjáni Þór segir:
Ég kynnti í ríkisstjórn í morgun 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á þessar greinar. Markmið aðgerðanna er að lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til skemmri og lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir.“
Nánar má lesa um aðgerðirnar í meðfylgjandi frétt, en nefna má:
- • Fallið frá áformum um 2,5% hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar til 1. september 2020
- • Íslensk garðyrkja efld til muna með auknum fjárveitingum
- • Aukin þjónusta og ráðgjöf til bænda vegna COVID-19
- • Greiðslur tryggðar til einstaklinga sem sinna afleysingaþjónustu fyrir bændur
- • Komið til móts við grásleppusjómenn varðandi lengd veiðitímabilsins
- • Afgreiðslu umsókna um rekstrarleyfa í fiskeldi flýtt
- • Aukið fjármagn í hafrannsóknir
- • Aukið svigrúm til að flytja aflaheimildir milli fiskveiðiára til að stuðla að sveigjanleika.