Flokkarnir hafa gert með sér samkomulag að sitja áfram í ríkisstjórn. Áður en stjórnin er kynnt hefur helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins kveðið sér hljóðs. Nú er um að gera að stuðningsfólk Katrínar og Vinstri grænna lesi:
„Aukin útgjöld til heilbrigðismála, verkefnatengd fjármögnun mikilvægustu stofnana, skila samfélaginu mestu ef það tekst að nýta kosti einkaframtaksins og tryggja samþættingu og samvinnu sjálfstætt starfandi aðila og hins opinbera í heilbrigðisþjónustu. Hið sama á við víðar, ekki síst í menntakerfinu.“
Þessi orð Óla Björns Kárasonar hefðu einhvern tíma farið þversum í Vg-liða. Sjallarnir fá heilbrigðisráðuneytið. Og munu hefjast handa fljótt og af krafti.
Óli Björn er ekki viss um að flokkarnir muni lifa í hamingjusömu samstarfi:
„Ég veit að það mun oft reyna á þolrifin í ríkisstjórnarsamstarfinu, jafnvel meira en á síðasta kjörtímabili. Þá skiptir miklu að missa ekki sjónar af markmiðunum – gleyma ekki hugmyndafræðinni í þeirri fullvissu að þolinmæði og úthald eru nauðsynleg til að vinna að framgangi hugsjóna.“
Þetta orðasalat segir okkur að oft voru átök á síðasta kjörtímabili. Og svo verður áfram.
Eina krafa Katrínar og hennar flokks virðist vera að hún verði áfram forsætis.