Seld verður súpa þeim sem koma svöng og gefin þeim sem eiga ekki fyrir henni.
Láglaunakonur sem þrífa hótelin í Reykjavík munu hefja eins dags verkfall að morgni 8. mars, á baráttudegi kvenna. Sýnum samstöðu okkar í verki og hittum þær á Austurvelli í hádeginu þann dag, föstudaginn 8. mars kl. 12:00; skjótumst úr vinnunni eða skrópum, sýnum stuðning við þessa baráttu. Kvennabarátta er stéttabarátta og stéttabarátta er kvennabarátta.
Efnahagslegt
sjálfstæði er frumskilyrði þess að konur fái notið ávaxta kvennabaráttu
undanfarinna áratuga. Láglaunastefnan heldur stórum hópi kvenna niðri, kúgar
þær og sviptir þær frelsinu.
Baráttukonur munu
ávarpa fundinn. Seld verður súpa þeim sem koma svöng og gefin þeim sem eiga
ekki fyrir henni. Mætið með gula gúmmíhanska á hægri hendi til að steyta hnefa
og taka með því undir kröfur láglaunakvenna um jafnrétti og jöfnuð.