„Þó að maður sé kannski hræddur við að segja það þá er þetta eiginlega mest bundið við útlendinga. Við verðum sérstaklega vör við þetta frá löndum þar sem menningin er þannig að konur eru skörinni lægra í stiganum heldur en karlmenn. Þeir líta á niður á konur, sérstaklega ef þær eru að segja þeim eitthvað sem þeim líkar ekki,“ segir Svanberg Sigurgeirsson, deildarstjóri ökuprófa hjá Frumherja, í samtali við Fréttablaðið.
Borið hefur á því að erlendir fullorðnir karlmenn sem stunda ökunám hérlendis hafi verið með ógnandi tilburði við konur í ökunáminu. Eftirlitsmyndavélar sýna að litlu hafi oft munað að ráðist hafi verið á kvenkyns prófdómara og þess vegna hafi öryggishnappar verið teknir í notkun í bílunum. „Við höfum þurft að hringja á lögreglu,“ segir Svanberg og bendir á að tilvikin hafi aðallega snúið að körlum frá löndum þar sem konur eru settar skör lægra en karlar.
„Sem betur fer hefur ekki verið gerð nein árás en það hafa verið mjög ógnandi tilburðir þar sem fólk hefur verið hrætt,“ segir Svanberg að lokum.