Það er nú það. Eitraðasta samband í íslenskri pólitík er að vinna með XD. Vænleg leið það til fylgishruns. Sjáum bara Framsókn sem er með skítamóral yfir að hafa verið hlekkjaður við Sjálfstæðisflokksins í heil sjö ár.
Staksteinar Moggans eru í fýlukasti. Það alveg mögnuðu. Eflaust er sárt að vera einn á reki og eiga enga vini. Víst er að það tekur Moggann sárt. Kíkjum aðeins á Staksteina.
„Meirihlutaviðræðurnar sem nú standa yfir í höfuðborginni eru á ýmsan hátt óvenjulegar og ekki að furða að það fari um marga borgarbúa sem sjá fyrir sér pólitísk hrossakaup á alveg nýjum skala. Þátttakendur í viðræðunum eru fimm, þar af tveir flokkar sem eru nýlega dottnir af þingi og einn sem hefur gert ítrekaðar árangurslausar tilraunir til að koma sér upp þingmönnum.“
Æi hvað þetta var sárt. Stærsti borgarstjórnarflokkurinn verður enn og aftur að sitja hjá.
Spádómur ritstjórans:
„Allir þessir flokkar, ekki síst Píratar og Vinstri grænir, reyna nú í örvæntingu að gera sig gildandi í hugum kjósenda, en að óbreyttu eru verulegar líkur á að þeir missi sveitarstjórnarmenn sína á næsta ári, hverfi og gleymist.“
Kannski gerist þetta. Vont er um slíkt að spá.
Köngulóin í miðjum þessum vef…
„Flokkur fólksins er þátttakandi í þessum viðræðum á forsendum sem kjósendur flokksins hljóta að furða sig á. Hinir flokkarnir fjórir hafa beitt sér með mjög ólíkum hætti í borgarmálum og er vandséð um hvað þeir ætla að sameinast án þess að Flokkur fólksins stórskaði sig og gjaldi fyrir í komandi kosningum,“ segir í Staksteinum.
Það er nú það. Eitraðasta samband í íslenskri pólitík er að vinna með XD. Vænleg leið það til fylgishruns. Sjáum bara Framsókn sem er með skítamóral yfir að hafa verið hlekkjaður við Sjálfstæðisflokksins í heil sjö ár.
„Köngulóin í miðjum þessum vef er svo Samfylkingin sem ætlar enn og aftur að véla aðra flokka til að tryggja sér ítök í borginni langt umfram það sem kjósendur vildu. Kryddpíurnar, eins og oddvitarnir fimm kalla sig, eiga vandasamt verk fyrir höndum við að útskýra þetta meirihlutasamstarf fyrir kjósendum.“
Samkvæmt þessu má sjá að Samfylkingin er í draumasæti XD.
Sjálfstæðisflokkurinn kýs sér nýja forystu eftir hálfan mánuð. Þeirra vegna er von um að það takist að opna glugga Valhallar og að óværum verði hent út.