Ég er búin að vera hálftíma föst í umferð á Suðurlandsbraut.
Við mjökumst hænufetið. Þvílíkt rugl sem þetta er í þessari borg? Það eru sko
10 ár í Borgarlinu. Ég er oftast róleg og yfirveguð en er orðin foxill og
hugsaði borgarstjóra og hans fólki í núverandi og síðasta meirihluta þegjandi
þörfina.
Þarf þetta að vera svona? Nei. Það hafa verið bornar á borð
ýmsar lausnir en engin slær í gegn. Bara sagt BORGARLÍNA!! HÚN REDDAR ÞESSU
ÖLLU!!
Trúir því einhver? Segi bara aftur eins á fundi
borgarstjórnar á þriðjudaginn á sama tíma og ég flissaði og var skömmuð í
kjölfarið. Í alvöru?
Ritstjórn
Miðjan er vefur um stjórnmál, mannlíf og efnahagsmál, ritstjóri er Sigurjón M. Egilsson