Þrátt fyrir að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist árið 2013 um 4,2% frá fyrra ári minnkaði kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 0,7%. Hefur hann verið að lækka frá því árið 2011. Kemur þetta fram í samantekt Hagstofu Íslands. Heildartekjur heimilanna jukust um 5,9% frá árinu 2012 til 2013.