Þekkt er að þegar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þá forsætisráðherra, þótti nóg um gagnrýni á sig, að hann líkti henni við loftárásir.
Nú hefur Katrín Jakobsdóttir, í „sjónvarpsviðtali“ á vef Moggans sagt þau sem gagnrýna hana fyrir kúvendinguna til hægri, og eru ekki henni sammála henni um að fara í fang Sjálfstæðisflokksins, vera ótínda pópúlísta.
Það var auðséð að Sjálfstæðisflokkurinn er eins og hann er og verður ekki öðruvísi. Nýjasta tilfellið er kenderí Bjarna Ben á Þorláksmessu og svo hrein og klár afskipti dómsmálaráðherrans, Áslaugar Örnu, að störfum lögreglunnar.
Mál Bjarna getur ekki verið svo þungt í vöfum að það taki marga mánuði að klára rannsóknina. Hvað veldur? Afskipti ráðherrans?
Frekleg afskipti ráðherrans af störfum lögreglunnar er bara einn eitt dæmið.
-sme