„Við stöndum um þessar mundir á tímamótum í jafnréttisbaráttunni, hér heima og á alþjóðavísu. Eftir langt framfaraskeið stöndum við frammi fyrir alvarlegu bakslagi í jafnréttismálum.“
Þetta er úr grein forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, í Mogga dagsins. Þegar ég leit á greinina var þetta það fyrsta sem ég las. Hélt að Katrín væri að taka upp hanskann fyrir fórnarlamb fantaskapar Lilja Alfreðsdóttur menntamálaráðherra sem er enn í hörðum slag, með ofurefli ríkisins að vopni, við konu sem aðeins leitaði réttar síns.
„Eftir langt framfaraskeið stöndum við frammi fyrir alvarlegu bakslagi í jafnréttismálum,“ skrifar og segir forsætisráðherra. Henni færi betur að slá á fingur menntamálaráðherrans. Gera það að sínu fyrsta verki til að stöðva bakslagið sem hún skrifar um.
Meðan ríkisvaldið fer fram sem raun er á eru öll orð um eigið ágæti Katrínar og ríkisstjórnar hennar marklaus með öllu.
-sme