Katrín ætti að finna sér annað starf
ÉG ER HEPPINN AÐ ÞURFA EKKI AÐ KJÓSA NÚVERANDI STJÓRNARFLOKKA Í NÆSTU KOSNINGUM.
Árni Gunnarsson skrifar:
KERFIÐ RÆÐUR. FORSÆTISRÁÐHERRA, SEM LÝSIR ÞVÍ YFIR, AÐ KERFIÐ RÁÐI ÖRLÖGUM UNGRA BARNA, SEM Á AÐ REKA ÚR LANDI, ÆTTI AÐ FÁ SÉR ANNAÐ STARF. ÉG HEF HAFT ÁLIT Á ÞESSUM FORSÆTISRÁÐHERRA, EN ÞEGAR HÚN SEGIST EKKI GETA NÝTT VALD SITT TIL BREYTINGA Á ÁKVÖRÐUN STJÓRNSKIPAÐRAR NEFNDAR, ÞÁ ER EITTHVAÐ MIKIÐ AÐ.
GRUN HEF ÉG UM, AÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN HAFI GERT BROTTREKSTUR BARNANNA AÐ EINHVERS KONAR ÚRSLITAATRIÐI Í SAMSTARFI FLOKKANNA. OG JAFNVEL BARNAMÁLARÁÐHERRANN, SEM M.A. Á AÐ FARA AÐ SAMÞYKKTUM SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM RÉTTINDI BARNA, SNÝR SÉR ÚT Í HORN OG LEGGUR SITT VALD Í HENDUR SÖMU NEFNDAR.
ÞETTA ER EITTHVERT NÖTURLEGASTA MÁL AF ÞESSU TAGI, ÞAR SEM ÍSLENSK STJÓRNVÖLD HAFA LÁTIÐ SIG EINU SKIPTA FRAMTÍÐ SAKLAUSRA BARNA.
Á SAMA TÍMA OG ÞETTA GERIST ERU AÐRAR EVRÓPUÞJÓÐIR AÐ UNDIRBÚA MÓTTÖKU Á ÞÚSUNDUM FLÓTTAMANNA. – ÓLÍKT HÖFUMST VÉR AÐ!!!
ÉG ER HEPPINN AÐ ÞURFA EKKI AÐ KJÓSA NÚVERANDI STJÓRNARFLOKKA Í NÆSTU KOSNINGUM.