„Hvað er best fyrir velferð barnsins í þessu máli? Verkfall er það ekki. Sú barnfjandsamlega tillaga að setja lögbann á verkfall fátækasta fólk landsins og þar af leiðandi fátæk börn landsins er barnfjandsamleg. Hún er ekki í boði.“
Þetta sagði Jón Þór Ólafsson Pírati á Alþingi í dag vegna vilja Sambands sveitarfélaga að Alþingi stöðvi verkfall Eflingarfólks með lagasetningu.
„Menn geta reynt að vera með hótanir um að senda svoleiðis hingað inn en ég trúi ekki að ríkisstjórnin myndi setja það á dagskrá. Ef hún gerði það væri minnsta mál að safna liðsinni hér á þingi til að stöðva slíkt. Það er ekki í boði. Það er ekki gott fyrir velferð barna sem okkur er skylt að vernda og sveitarfélögunum er líka skylt að vernda. Hvað er í boði? Við höfum fordæmi úr Reykjavík þar sem velferðarsamningar við Eflingu tryggðu lægst launaða fólki sveitarfélagsins mjög ríflega og ásættanlega launahækkun og styttu vinnuviku þeirra, sem styrkir að börn geti átt í samskiptum við foreldra sína. Það er eina leiðin í þessu máli sem tryggir velferð barna. Háttvirtur formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætti að sjá sóma sinn í því að draga þessa duldu hótun til baka og skammast sín,“ sagði Jón Þór Ólafsson.
Forseta Alþings virðist hafa verið nóg boðið:
„Forseti hvetur til þess að menn gæti hófs í orðanotkun, sérstaklega um fjarstadda aðila sem ekki geta svarað hér fyrir sig.“