Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrum ráðherra, vill mynda nýjan meirihluta á Alþingi til að koma nýjum virkjunum áfram. Vinstri græn, eru að mati þingliðs flokksins, dragbítur á öflun nýrrar orku.
Í Mogganum í dag er viðtal við Hildi Sverrisdóttur þingflokksformann. Í fréttinni segir:
„Margir flokksmenn Sjálfstæðisflokks nefni það mál ásamt öðrum varðandi fýsileika þess að mynda nýjan meirihluta.“
Síðan kemur orðasalat af dýrari gerðinni:
„Það er þannig í stjórnmálum að maður myndi auðvitað helst geta myndað ríkisstjórn um þá sýn eingöngu sem maður sjálfur aðhyllist. Það er verkefni okkar í stjórnmálum að reyna að gera meira gott en ekki. Það er því ábyrgðarhluti okkar að spyrja í sífellu hvort við náum að gera meira gott en ekki í því ríkisstjórnarsamstarfi sem er augljóst öllum að inniheldur ákveðinn áherslumun á hvað sé samfélaginu fyrir bestu. Þetta ríkisstjórnarmynstur er krefjandi en fékk endurnýjað umboð í síðustu kosningum og er því núna komið á sjöunda ár, sem er langur tími í öllum samanburði.“