Jói Berg gekk í það heilaga með Hófý sinni á Spáni – SJÁIÐ MYNDIRNAR!
Fótboltakappinn snjalli Jóhann Berg Guðmundsson og lögfræðingurinn Hólmfríður Björnsdóttir gengu í það í heilaga á Spáni við fallega, skemmtilega og hátíðlega athöfn; var mál gesta að mikil stemmning hafi verið á þessum gleðilega degi.
Jóhann Berg bar upp bónorðið árið 2018, og að sjálfsögðu var svarið já.
Hjónin fallegu eiga tvö börn saman og fjölskyldan hreinlega geislar af gleði þessi dægrin.
Hólmfríður er lögfræðingur, en hún er alltaf kölluð Hófý; hún æfði samkvæmisdansa og er margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari í latin og ballroom.
Ekki nóg með það, heldur var hun aðeins átján ára gömul ára gömul þegar hún ákvað að taka einkaflugmanninn samhliða námi við Versló – en fluttist síðan til Danmerkur, sérstaklega til að huga að dansinum; bjó þar í rúm tvö ár.
Eftir heimkomuna til Íslands hóf Hófý nám í lögfræði við Háskóla Íslands, en á sumrin starfaði hún sem flugfreyja hjá Icelandair; skemmti einnig um allt land sem Solla Stirða úr þáttunum Latabæ.
Í dag spilar Jóhann Berg fyrir Burnley í ensku úrvalsdeildinni, og á líka stórkostlegan feril að baki sem landsliðsmaður – sem vonandi sér ekki strax fyrir endann á.
Miðjan sendir þessari fallegu fjölskyldu sínar bestu kveðjur – til hamingju!