Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir birti mynd af nýfæddri dóttur sinni og kærastsand Ólafs Friðriks Ólafssonar. Saman eignuðust þau dóttur 23. apríl síðastliðinn en Jóhanna Guðrún á tvö börn úr fyrra sambandi.
Jóhanna Guðrún greindi frá fæðingu stúlkunnar á Instagram í gær.
„Þessi litla drottning kom í heiminn 23. apríl. Þakklát kona að fá þriðja gullmolann,“ skrifar hún.