Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar vill að atvinnuleysisbætur hækki um 14.000 krónur á mánuði, eða 4,6 prósent, eins og gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun fyrir árið 2022.
Jóhann Páll skorar á Guðmund Inga Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra að fylgja forsendum áætlunarinnar, og biðlar til þingmanna í meirihlutanum „að banka“ í félags- og vinnumarkaðsráðherra; skora á hann að hækka atvinnuleysisbætur um 4,6 prósent, eins og gert var ráð fyrir í fjármálaáæltun fyrir árið 2022; með reglugerðarbreytingu og það áður en þing fer í sumarfrí.
Jóhann Páll bendir á að í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu hefði það verið mjög skýrt að atvinnuleysisbætur yrðu hækkaðar um 4,6 prósent – um sömu prósentutölu og greiðslur almannatrygginga.
„Við hér á Alþingi gerðum ráð fyrir þessu þegar fjárlögin voru afgreidd. Hvað gerðist svo? Jú, án þess að mikið bæri á því, og án þess að nokkur umræða færi fram um það hér á Alþingi eða í samfélaginu, þá hækkaði hæstvirtur félags- og vinnumarkaðsráðherra grunnatvinnuleysisbætur miklu minna, ekki um 14.000 krónur eins og Alþingi ætlaðist til, heldur um 6.300 krónur.
Síðan hafa bæturnar fengið að rýrna að raunvirði eftir því sem verðbólgan hefur rokið upp. Hvað gerðist svo þegar ríkisstjórnin lét loksins undan þrýstingi stjórnarandstöðunnar og kynnti mótvægisaðgerðir vegna verðbólgunnar? Jú, þá var aftur ákveðið að skilja atvinnuleitendur eftir, hóp sem er með lægstu tekjurnar á Íslandi og er þannig sérstaklega berskjaldaður fyrir hækkandi matvæla-, eldsneytis- og húsnæðiskostnaði,“ sagði Jóhann Páll og bæti við:
„Þetta er alveg ótrúlega ómerkilegt, þetta er bara mjög ómerkileg framganga. Gerið það nú, þingmenn meirihlutans, bankið í hæstvirtan félags- og vinnumarkaðsráðherra. Sameinumst um að leiðrétta þetta og fylgja forsendum fjárlagaársins 2022. Þó það nú væri.“