Jafnlaunastaðallinn vekur athygli
Jafnrétti Maríanna Traustadóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ, flutti fyrirlestur á Nordiskt Forum í júní sem vakti mikla athygli en þar fjallaði hún um Jafnlaunastaðalinn sem er nýtt verkæri gegn kynbundnum launamun. Hún fjallaði um tilurð hans, þróun og stöðuna í dag.
Erindi var haldið í málstofu sem bar yfirskriftina „Feminisminn ogvinnumarkaðurinn“. Það voru haldin sex erindi af konum og körlum víðs vegar að, sem á einhvern hátt fjallaði um vinnumarkaðinn. Áherslan í erindi Maríönnu var á launamun kynjanna og nýjar leiðir til að vinna að því að eyða þeim mun.
Það er vefur ASÍ sem birti þessa frétt.