Íslendingar hafa með viðurkenningu sinni á Palestínu tekið skýra afstöðu.
Birgir Jónsson skrifar:
Ísland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki, var raunar með fyrstu ríkjum sem gerði það.
Það er því ekkert meira krassandi að veifa fána Palestínu en að veifa öðrum fánum, sérstaklega í umhverfi sem litast af þjóðfánum og stuðningsyfirlýsingum við mannréttindabaráttu og málstaði (Pride fána,etc).
Það væri því í raun mun pólitískari afstaða að veifa EKKI fána Palestínu því með því er verið að taka þátt í ritskoðuninni sem gestgjafar keppninnar eru að ástunda og eru þar með sjálfir að brjóta reglur keppninnar um að hún skuli vera ópólitísk.
Íslendingar hafa með viðurkenningu sinni á Palestínu tekið skýra afstöðu (samt ekkert á móti Ísrael) og þar með á RÚV eða keppendur á þeirra vegum ekki að láta ritskoða sig eða taka þátt í annarri þöggun af hálfu stjórnvalda í Ísrael.