- Advertisement -

Innmúraður og innvígður hæðist að Bjarna formanni Sjálfstæðisflokksins

„Það er því nokkuð ljóst, að ef við ætlum að taka orð Bjarna trúanlegar upplýsingar og haga okkar málum samkvæmt þeim, þá fari lífskjör hér marga áratugi aftur í tímann.“

Kristinn Karl Brynjarsson formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.

Stjórnmál Kristinn Karl Brynjarsson, sem er formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, skrifar grein á Vísi. Kristinn Karl skýtur föstum skotum að Bjarna Benediktssyni formanni.

Greinin byrjar svona:

„Á meðan framleitt er margfalt meira af rafmagni en þarf til grunnþarfa samfélagsins er ekki hægt að tala um orkuskort.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Nóg til að rafmagni segir Krisitnn Karl.
Mynd: israel palacio / unsplash

Engu að síður hafi flest orkufyrirtæki landsins stundað gegndarlausan áróður um að sú sé raunin og að jafnvel gæti komið til þess að skerða þurfi rafmagn til heimila. „Ég tel þennan áróður orkufyrirtækjanna forkastanlegan í raun,“ sagði Bjarni. „Það er enginn fótur fyrir því að landið sé að verða rafmagnslaust.“

Svo kemur þetta og hana nú:

„Reyndar sé það svo að Íslendingar búi við meira orkuöryggi en nokkur önnur þjóð „vegna þess að við framleiðum fimm sinnum meira heldur en þarf til grunnþarfa alls samfélagsins. Þar með eru talin öll heimilin í landinu, allur landbúnaður, allur sjávarútvegur, það er að segja verkun í landi, sjúkrahúsin okkar og hvað eina. Fimm sinnum meira rafmagn en grunnþarfir samfélagsins þurfa á að halda.“

Áfram heldur formaður verkalýðsráðsins:

„Við gætum prófað að færa röksemdafærslu Bjarna yfir á aðra auðlind okkar, sjávarauðlindina og sagt þar fullum fetum, að hér sé ofveiði á fiski, því hér sé veitt margfalt meira en myndi duga svo öll heimili í landinu gætu haft fisk í matinn þrjá til fjóra daga í viku.“

Staðreyndin er nú samt sem áður sú, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá er það í rauninni fyrst og fremst, nýting auðlinda okkar og útflutningur afurða þeirrar nýtingar sem ekki bara hefur haldið lífi í þjóðinni heldur einnig á undangenginni öld eða svo gert þjóðina með þeim ríkari í heiminum og viðhaldið hér góðum lífskjörum og gert þetta land okkar að einu af betri löndum til að búa í og starfa.“

Grunar  Bjarni hafi svelgst á vatninu þegar hann las þetta frá samherja í flokknum.

Fiskurinn sem þar syndir, verður ekki að auðlind…

„Nú er það svo að fallvötnin og annað sem við virkjum, verður ekki að auðlind, nema að sú orka sem þar býr er virkjuð og seld til verðmætasköpunar. Eins er það með hafið í kringum okkur. Fiskurinn sem þar syndir, verður ekki að auðlind, fyrr en einhver sér hag sinn í því að fjárfesta í búnaði til veiða og vinnslu og selja sínar afurðir á sem hæstu verði á markaði.

Það er því nokkuð ljóst, að ef við ætlum að taka orð Bjarna trúanlegar upplýsingar og haga okkar málum samkvæmt þeim, þá fari lífskjör hér marga áratugi aftur í tímann.“

Já, ekki er mikið gefið fyrir stjórnarhæfileika Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: