Illugi valdi framkvæmdastjóra LÍN
Illugi Gunnarsson upplýsti á Alþingi í dag að hann hafi rætt við umsækjendur um stöðu framkvæmdastjóra LÍN. Og eins, að stjórn LÍN hafi, talið annan umsækjanda hæfari en Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir sem Illugi síðan valdi til í starf framkvæmdastjóra.
En hvers vegna? Illugi sagði mestu hafa ráðið reynsla og þekking úr stjórnsýslunni.
Það var Helgi Hjörvar sem spurði menntamálaráðherra um þetta á Alþingi í dag. Helgi spurði til að mynda hvort sá umsækjandi, sem var talinn hæfastur, fengi rökstuðning ráðherra fyrir að hafa tekið ákvörðun.
Svar Illuga er hér í hljóðbrotinu:
Þú gætir haft áhuga á þessum