„Þannig vill til að sá sem hér stendur er búinn að standa í þó nokkru ströggli, afsakið, herra forseti, í þó nokkrum átökum má segja, við framkvæmdarvaldið um að fá fram sjálfsagðar upplýsingar sem varða almenning,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson Miðflokki á Alingi.
„Og svo því sé til skila haldið hefur forseti þingsins tekið að hluta mjög vel á til að slíkar upplýsingar kæmu fram. Það hefur hins vegar tekið nokkur ár að fá fram upplýsingar sem varða almenning en viðkomandi ráðherrar hafa sem sagt hangið á þeim eins og hundar á roði, ef ég má orða það þannig, herra forseti, og meira að segja fengið þá einkunn í greinargerð frá yfirlögfræðingi Alþingis að þeir hafi gengið á svig við lög um þingsköp og lög um ráðherraábyrgð með því að draga að svara fyrirspurnum um brýn mál. Þetta er eitt sem ég vildi aðeins koma fram með.“