„Ég get alveg viðurkennt það að mér og mörgum innan hreyfingarinnar hefur orðið ansi heitt í hamsi yfir þessum endalausa áróðri. Í gegnum allt okkar samningsferli voru þeir að reyna að koma í veg fyrir samninga sem við unnum að fyrir okkar félagsfólk,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar og stjórnarmaður í Starfsgreinasambandinu, í samtali við mbl.is.
Aðalsteinn er formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar og stjórnarmaður í Starfsgreinasambandinu. Hann hvetur Eflingarfólk til þess að snúa sér að eigin kjarabaráttu og hætta að draga hans fólk niður í svaðið.
Hann segir skammarlegt fyrir stéttarfélag í Reykjavík að ala á klofningi milli verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni og að nú sé mælirinn einfaldlega orðinn fullur.
Aðalsteinn bendir á að það sé einfaldlega rangt að framfærslukostnaður sé hærri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Hann nefnir m.a. kostnað við að sækja heilbrigðisþjónustu, bensínkostnað auk aðgangs að lágvöruverslunum.
„Það liggur fyrir að laun eru almennt miklu hærri á höfuðborgarsvæðinu. Við getum horft á kostnað við heilbrigðisþjónustu þar sem við þurfum í mörgum tilvikum að fara suður til Reykjavíkur með tilheyrandi kostnaði sem hið opinbera tekur lítinn þátt í. Bensínverð er miklu hærra á landsbyggðinni en höfuðborgarsvæðinu auk þess sem ungt fólk þarf oft á tíðum að sækja nám suður með tilheyrandi kostnaði.
Þess utan þarf fólk sem býr t.d. aðeins austan við Húsavík á Kópaskeri, Raufarhöfn og Bakkafirði, Vopnafirði og um alla Vestfirði og víða á Austurlandi að keyra mörg hundruð kílómetra til að komast í lágvöruverslanir en því fylgir tilheyrandi bensínkostnaður og vinnutap,“ segir Aðalsteinn.
Sem fyrr segir er fréttin byggð á frétt á mbl.is.