Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Fréttir

Hvers vegna ferðast ráðherrar?

By Miðjan

May 22, 2015

Alþingi Katrín Júlíusdóttir hefur spurt allra ráðherra ríkisstjórnarinnar um hversu margar utanlandsferðir hver og einn ráðherra hefur farið það sem af er kjörtímabillinu.

Katrín vill einnig vita hvert tilefni ferðanna var, hversu lengi þær stóðu, hvað þær kostuðu og hversu margir voru í fylgdarliði hvers ráðherra.

Katrínu verður svarað með skriflegu svari.