Myndin er samsett.

Mannlíf

Hvers son er Kristján Jóhannsson?

By Miðjan

July 27, 2024

Innsetning forseta Íslands.Við lestur gestalista Höllu Tómasdóttur kemur margt skrítið í ljós. Listinn sem birtur er á Vísi er hrákasmíð. Villur og hálfunnin nöfn gestanna vekur furðu. Ekki kann ég deili á nema hluta boðsgestanna.

Ég tek út úr eina skömmina. Má vera að allir aðrir Íslendingar en forsetinn tilvonandi vita að stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson er ekki Jóhannesson. Hann er sonur Jóa Konn, Jóhanns Konráðssonar.

Hér er listinn eins og hann birtist á Vísi:

Gestirnir verða svo margir að mestur hluti þeirra mun sitja á stólum í nýja húsi Alþingis, Smiðju, og horfa á herlegheitin í sjónvarpi.