Björn Leví Gunnarsson skrifar:
„Nýta fjármuni betur“
Ég biðst fyrir fram afsökunar á orðbragðinu.
Hvers konar helvítis bull er þetta eiginlega. Hvað var þá fyrri fjármálaáætlun? Slæm nýting á fjármunum?
Þessi drasl fjármálaráðherra má vinsamlegast hætta að úða út svona fokking bulli.
Það á til dæmis að efla skatteftirlit sem á að skila meiri tekjum. Það eina sem það segir mér er að fyrri áætlun hafi verið sett fram með ívilnunum fyrir skattsvikara. Það er ekki fyrr en herðir í ári að þessi fjármálaráðherra neyðist til þess að ganga á þær ívilnanir … það verður samt að skerða tilfærslukerfi almannatrygginga líka.
Þetta er ekki heiðarleg framsetning hjá ráðherra sem ber að segja satt og rétt frá.
Það á að hækka skatta á heimili í „svokallaða“ græna skatta. Bæta við urðu árgjaldi á heimilissorp sem getur svo sem verið ágætt en samtímis eru framlög til umhverfismála minnka.
Já, það fýkur í mig þegar ráðherra bullar svona og mér finnst bara fullkomlega eðlilegt að tjá þá tilfinningu með viðeigandi orðum til þess að fólk skilji hversu alvarlegt mér finnst þetta vera.