Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokks fólksins hafa lagt fram fimm spurningar um hvaða borgarfulltrúar, starfsmenn og embættismenn fá frí bílastæði hjá Reykjavíkurborg.
- Hvað gefur Reykjavík út mörg bílastæðakort til kjörinna fulltrúa, embættismanna, starfsmanna borgarinnar, starfsmanna í B-hluta fyrirtækjum og starfsmanna Hörpu í ráðhúsið, Borgartún og Hörpuna endurgjaldslaust sundurgreint eftir starfsstöð?
- Hvaða kjörnirfulltrúarReykjavíkurborgar njóta þeirra hlunninda að hafa bílastæðakort endurgjaldslaust sundurgreint eftir starfsstöð?
- Hvaða embættismenn njóta þessara kjara sundurgreint eftir starfsstöð?
- Hvað kosta þessi kort/hlunnindi fyrir borgina á ársgrundvelli?
- Á hvaða grunni er sú ákvörðun byggð að sumir borgarfulltrúar hafi ekki aðgang að þessum hlunnindum sem er grunnur þess að sinna starfi sínu?