Krónutala veiðileyfagjalds hefur lækkað um tæp 60% á þremur árum.
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar:
Ein verðmætasta sameiginlega eign þjóðarinnar samkvæmt lögum er sjávarauðlindin. Fyrir nýtingu á henni greiðir útgerðin veiðileyfagjald. En vissu þið þessa fimm punkta um veiðileyfagjöldin:?
1. Veiðileyfagjöld síðasta árs dugðu ekki einu sinni fyrir þeim kostnaði sem hið opinbera verður fyrir við að þjónusta greinina, eins og eftirlit og hafrannsóknir.
Sjávarútvegsfyrirtækjunum tókst meira að segja síðustu jól að lobbýja í gegnum fjárlaganefnd Alþingis viðbótarfé úr ríkiskassanum til að fjármagna loðnuleit en samkvæmt lögum á veiðileyfagjaldið að duga fyrir slíkum kostnaði.
2. Annar samanburður sem ég fann út var að veiðileyfagjaldið var þá svipað hátt og útvarpsgjaldið og það var jafnvel lægra en tóbaksgjaldið!
Stangveiðimenn greiddu hærra gjald en stórútgerðin
3. Stangveiðimenn greiddu í fyrra hærri veiðileyfagjöld fyrir veiði sína í ám og vötnum heldur en stórútgerðin greiddi fyrir aðgang sinn að einum bestu sjávarauðlindum jarðar, sem þjóðin á samkvæmt lögum.
Mikilvægt er að rugla ekki saman veiðileyfagjaldi við aðra skatta sem öll önnur fyrirtæki greiða. Veiðileyfagjald er gjald fyrir aðgang að sjávarauðlindum sem almenningur á.
4. Krónutala veiðileyfagjalds hefur lækkað um tæp 60% á þremur árum. Ekki er mjög sannfærandi að halda því fram að afkoma greinarinnar hafi versnað um tæp 60% á þessu tímabili.
Samkvæmt nýjustu tölum frá sjávarútvegsdeginum 2020 sem byggir á tölum frá fyrirtækjunum sjálfum hefur eigið fé (sem eru eignir mínus skuldir) fyrirtækjanna aukist um 60% á 5 árum.
Sé litið á kjörtímabilið í heild, sem lýkur eftir 5 mánuði, nemur lækkun krónutala veiðileyfagjalda um þriðjung.
Þegar kemur að þeim varnarpunkti sérhagsmunagæslunnar að hækkun veiðileyfagjalds komi sér svo illa við litlar útgerðir þá má minna á að 80% veiðileyfagjaldsins er greitt af einungis 3% af öllum þeim aðilum sem greiða veiðileyfagjald.
Prívat-arður stórútgerðar hærri en veiðileyfagjöld þjóðar
5. Veiðileyfagjöldin sem þjóðin, eigandi auðlindarinnar, fær, eru lægri en arðurinn sem rennur í prívatvasa útgerðarmanna. Þessar prívat-arðgreiðslur sem renna einungis í vasa útgerðarmanna og fjölskyldna þeirra voru yfir 60 milljörðum á 5 árum.
Til samanburðar er þessi upphæð prívat-arðgreiðslna næstum tvöfalt hærri en það sem allir framhaldsskólar landsins fá árlega. Hún er þrisvar sinnum hærri en það sem þessi ríkisstjórn setur í umhverfismál eða í Háskóla Íslands. Tvöfalt hærri en það sem allar heilsugæslur landsins fá á hverju ári.
Þessi gríðarlega eignasöfnun stórútgerðarinnar hefur þau áhrif að þessir einstaklingar og erfingjar þeirra geta síðan auðveldlega keypt sér inn í önnur svið íslensks hagkerfis og er það löngu byrjað. Og eignast þeir þannig meira og minna Ísland.
Er ekki ástæða til að breyta þessu?