Húsfyllir og pólitísk straumhvörf?
Ögmundur efndi til fundar í Þjóðmenningarhúsinu um Orkupakka 3.
Ögmundur Jónasson, fyrrum þingmaður og ráðherra VG, efndi til fundar í Þjóðmenningarhúsinu um Orkupakka 3. Fundarsalurinn var troðfullur og þótt gera megi ráð fyrir að þar hafi verið áhugamenn úr öllum flokkum er líklegra en hitt að kjarninn í þessum mikla fjölda hafi verið úr VG.
Þetta má lesa á vef Styrmis Gunnarssonar, styrmir.is.
„Segja má, að þessi fundur sé fyrsta staðfestingin á, að grasrótinni í VG líði eins og grasrótinni í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vegna þessa máls.
Það er viðvörun, sem forysta VG ætti að gefa gaum.
Orkupakkamálið er að komast á það stig að geta orðið miklu örlagaríkara fyrir stjórnarflokkana alla en þingflokkar þeirra virðast gera sér nokkra grein fyrir.
Það eru svona mál, sem geta valdið straumhvörfum í stjórnmálum,“ skrifar Styrmir.