Hundar fái að fara á kaffihús og verslanir
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hefur lagt fram þessa tillögu:
Flokkur fólksins leggur til að Reykjavíkurborg hafi frumkvæði að því að heilbrigðisnefnd Reykjavíkur fái undanþágu frá reglugerð um hollustuhætti og að samþykkt um hundahald verði endurskoðuð. Farið verði fram á undanþágu frá reglugerðinni um:
1. Að gæludýr hafi aðgang að kaffihúsum með eigendum sínum þar sem rekstraraðilar leyfa.
2. Gæludýr hafi aðgang að verslunarmiðstöðvum nema annað sé tekið fram. Einnig er lagt til að hundaleyfisgjaldið verði nýtt til að bæta aðstöðu fyrir hundaeigendur í borginni.
Gjaldið er nú notað til að greiða niður starfsemi hundaeftirlits borgarinnar.