Ragnar Þór Ingólfsson skrifar:
Meirihlutinn í borgarstjórn kynnir! Í samvinnu við Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins! Byggt á skáldsögum leiðarahöfunda Fréttablaðsins og Moggans!
Höfrungahlauparinn!
Átakasaga láglaunastétta þar sem svik, ánauð og ofbeldi eru nær daglegur brauðmoli. Þetta er saga láglaunafólks sem reynir á æsispennandi hátt að brjótast til mannsæmandi lífskjara undir ströngu eftirliti hákarlasveita sem svífast einskis í baráttu sinni fyrir aukinni misskiptingu.
Aðalhlutverk: Félagsmenn Eflingar, Halldór Benjamín Þorbergsson, Hörður Ægisson og Brynjar Níelsson. Sérstakur gestur í aukahlutverki: Guðmundur Ragnarsson.
Leikstjóri: Björn BjarnasonFramleiðandi: Dagur B. Eggertsson