Hrynjandi hrunflokkur
Varla er um það deilt að hrun var fyrst og síðast á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins, helsta valdaflokks þjóðarinnar. Nú er barist innan flokks og hláleg staða hans nú eykur átökin. Morgunblaðsfóstbræðurnir Styrmir og Davíð hafa eitt og annað um stöðuna að segja. Davíð notar sér Styrmi í Staksteinum dagsins og bætir sjálfur við.:
„Styrmir Gunnarsson bendir á að í könnun Zenter mælist „fylgi Sjálfstæðisflokksins 20,5%, sem er 2,1 prósentustigi minna fylgi en í könnun sama aðila hinn 27. júní sl. Í könnun MMR fyrir skömmu mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 19% fylgi.
Það verður fróðlegt að sjá, hvort þjóðarpúls Gallup staðfestir þessa þróun, þegar þær tölur koma, væntanlega undir lok vikunnar.
Stóra myndin er sú, að frá hruni hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins hrunið. Það hefur lítið sem ekkert verið rætt á opnum vettvangi flokksins, þótt sjálfsagt hafi slíkar umræður farið fram bæði í þingflokki og miðstjórn.
Er ekki kominn tími á slíkar umræður á opnum vettvangi meðal flokksmanna?
Það er athyglisvert að fylgjast með þeim áhrifum, sem harðari stefna Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, gagnvart ESB er að hafa á fylgi Íhaldsflokksins í Bretlandi, sem er á uppleið. Getur verið að orkupakkinn eigi hlut að máli að því er varðar Sjálfstæðisflokkinn hér?“
Þetta er rétt en flokkurinn hafði þó rétt sig verulega af þar til hann kúventi án skýringa í Icesave og storkaði flokksfólkinu og hefur ekki borið sitt barr síðan. Því var hreint óráð að hann hyrfi frá samþykkt Landsfundar og yfirlýsingum formanns á þingi um orkupakkann og enn skýringarlaust.“