- Advertisement -

Hótelgisting nærri helmingi dýrari í Reykjavík en í Bergen og Hamborg

Ole Anton Bieltvedt skifar:

Eins og flestir vita, er ferðaþjónustan orðin okkar veigamesta „útflutningsgrein“. Gjaldeyristekjur okkar, líka styrkur ísl. krónunnar (ISK), eru því mikið undir tekjum af ferðaþjónustu komnar. Útflutningur iðnvara skipti líka vaxandi máli, og sjávarútvegurinn gegnir áfram sínu veigamikla hlutverki, fyrir útflutning og gjaldeyristekjur, þó í 3ja sæti sé.

Brýnt er því, annars vegar, að vel sé að ferðaþjónustu búið, hins vegar, að hún sé vel og skynsamlega rekin, af ábyrgð og fyrirhyggju, með lagntímamarkmið í huga, þannig, að greinin standi sig í alþjóðlegri samkeppni og erlendir ferðamenn vilji og geti, hafi efni á, að koma hingað og dvelja hér.

Menn eru varla að fara í það langa ferðalag, sem það er, að fljúga hingað út í mitt Atlantshafið, fyrir minni tíma en 1-2 vikur. Þegar farið er í lengri ferðir til að komast á áfangastað, verður viljinn til að dvelja lengur ríkur, og spilar dvalarkostnaður, ekki sízt gistikostnaður, þá stóra og sennilega afgerandi rullu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Aðalkostnaðarliður ferðamanna er því kostnaður við hótelgistingu.

Um 25 flugfélög munum fljúga til og frá Íslandi, og tryggir sú umfangsmikla samkeppni, að flugfargjöld séu samkeppnisfær og verði ekki hindrun fyrir því, að ferðamenn komi hingað.

Aðalkostnaðarliður ferðamanna er því kostnaður við hótelgistingu. Skal hann því skoðaður nokkur hér. Auðvitað eru matar- og bílaleigukostnaður líka veigamiklir kostnarliðir, en einkum matarkostnaður er opinn og sveigjanlegur, og kemur hann því minna til skoðunar, þegar ferðakostnaður er fyrirfram reiknaður og áfangastaður valinn.

Ég ákvað að skoða gistikostnað hér í Reykjavík, í Bergen í Noregi og í Hamborg í Þýzkalandi. Mín tilfinning er, að þannig fáist nokkuð skýr mynd af því, hvar og hvernig við stöndum í þessum samanburði. Annars vegar stendur annar norrænn bær eða borg, ekki ósvipuð Reykjavík, hins vegar, ein af stórborgum meginlandsins.

Booking.com er einn öflugasti þjónustu- og milligönguaðilinn í Evrópu á sviði hótelbókana. Ég ákvað að fara þar inn með fyrirspurn fyrir tímabilið 30. júlí til 5. ágúst nk., en það eru 6 nætur.  Ég gaf upp, að aðeins skyldu sýnd 4ra stjörnu hótel, fyrir tvo gesti í herbergi, með morgunverði.

Síðan valdi ég 10 beztu tilboðin á hverjum stað úr, og mun ég sýna þau, hér fyrir neðan, og, þá um leið, meðaltalskostnað við gistigu á þessu 10 hagstæðustu hótelum, í þessar 6 nætur, og svo gistingarkostnað á nótt.

REYKJAVÍK:

1.Reykjavik Natura-Berjaya EUR 1.296 2. Reykjavik Marina-Berjaya EUR 1.440 3. Hótel Ísland – Spa & Wellness EUR 1.534 4. Hótel Reykjavík Grand EUR 1.818 5. Hilton Reykjavik Nordica EUR 1.865 6. Hotel Reykjavík Centrum EUR 1.880 7. Fosshotel Reykjavík EUR 1.974 8. Grandi by Center Hotels EUR 2.085 9. Midgardur by Center Hotels EUR 2.085 10. Exeter Hotel EUR 2.234. (Hótel nöfn eru skrifuð með sama hætti og er á booking.com).

Meðaltalsgistikostnaður í þessar 6 nætur, á þessum 10 hótelum í Reykjavík, var þannig EUR 1.821, eða íslenzkar krónur, ISK, 273.100. Jafngildir það 45.500 krónum á nótt. Í sannleika sagt, fór hálfpartinn um mig, þegar ég var búinn að reikna út þessar tölur.

BERGEN:

1.Comfort Hotel Bergen Airport EUR 742, 2. Quality Hotel Edvard Grieg EUR 776, 3. Scandic Kokstad EUR 822, 4. Scandic Flesland EUR 918 5. Magic Hotel EUR 996 6. Clarion Hotel Bergen Airport EUR 1.003 7. Thon Hotel Bergen Airport EUR 1.063 8. Scandic Bergen City EUR 1.186 9. Zander K Hotel EUR 1.379 10. Scandic Örnen EUR 1.415. Hér koma nokkuð fram flugvallarhótel, en flugvöllurinn í Bergen er aðeins 10-15 aksturmínútur frá miðbænum.

Meðaltalsgistikostnaður í Bergen þessar 6 nætur, á þessum 10 hótelum, var þannig EUR 1.030, eða ISK 154.500. Jafngildir það 25.750 krónum á nótt. Gistikostnaður í Bergen er því heilum 43% ódýrari en á sambærilegum hótelum í Reykjavík. Má þá hafa í huga, að í ýmsum mælingum mælist Noregur eitt dýrasta land í heimi.

HAMBORG:

1.H4 Hotel Hamburg Bergedorf EUR 677 2. ARCOTEL Rubin Hamburg EUR 832 3. Crowne Plaza Hamburg-City EUR 944 4. HYPERION Hotel Hamburg EUR 981 5. NH Hamburg Altona EUR 991 6. ARCOTEL Onyx Hamburg EUR 1.032 7. Lindner Hotel Hamburg EUR 1.037 8. Leonardo Hotel Hamburg EUR 1.132 9. Radisson Blu Hotel Hamburg EUR 1.142 10. THE SCOTTY Hotel Hamburg EUR 1.147.

Meðaltalsgistikostnaður í Hamborg þessar 6 nætur, á þessum 10 hótelum, var þannig EUR 992, eða ISK 148.800. Jafngildir það 24.800 krónum á nótt. Gistikostnaður í Hamborg er því heilum 45% ódýrari en á sambærilegum hótelum í Reykjavík.

Menn geta velt því fyrir sér, hvaða öfl eru að verki.

Yfirkeyrðir vextir eru auðvitað mikið aukaálag á hótelreksturskostnað hér, í samanburði við Noreg og Þýzkaland, en hann þarf auðvitað að fjármagna, með þessum dýru peningum, en, að öðru leyti, virðist mér kostnaður í Noregi, t.a.m. húnsnæðiskostnaður, sem teljast verður grunnkostnaður í þessu mati, vera svipaður og hér, og launakostnaður er jafnvel lægri hér. Þessi mismunur á meðalgistingu, 45.500 hér, 25.750 í Bergen,er  því með algjörum ólíkindum. Óefni!

Það, að heimsborgin Hamborg sé 45% ódýrari en Reykjavík, en húsnæðiskostnaður er þar hár, jafnvel þó að laun kunni að vera lægri, verður að telja skandal.

Menn geta velt því fyrir sér, hvaða öfl eru að verki, sem valda þessum yfirþyrmilega gistikostnaði hér, en hann  spillir meir og meir fyrir komu ferðamanna og stórskaðar ferðaþjónustuhagsmunina, sem eru okkar allra. Má ætla, að einhver þáttur þessar yfirkeyrslu kunni að vera vonin og viljinn um skjótfenginn hagnað, gróðafíkn.

Hvað, sem þessum ástæðunum líður, virðist ljóst, að íslenzkir hóteleigendur eru að verðleggja sig út úr kortinu, en, hér í lokin, má minna á, að orkuskostnaður, sem líka er umtalsverður kostnaðarþáttur við hótelsrekstur, er hér í lágmarki.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: